Vikumatseðill Gurrýjar kemur okkur í form

Gurrý, þjálfari í Yama-heilsurækt, velur vikumatseðilinn að þessu sinni.
Gurrý, þjálfari í Yama-heilsurækt, velur vikumatseðilinn að þessu sinni. Mbl.is/aðsend

Vikumat­seðill­inn að þessu sinni er í boði Guðríðar Torfa­dótt­ur, eða Gurrýj­ar eins og hún oft­ast er kölluð. Gurrý hef­ur komið mörg­um land­an­um í sitt besta form, og þjálf­ar í Yama-heilsu­rækt – einni af betri stöðvum lands­ins.

„Eft­ir furðuleg­an vet­ur erum við þjálf­ar­ar Yama með eitt mark­mið, það er að koma fólki í topp form í sum­ar, og ég myndi segja að núna væri frá­bær tími til að byrja æfa og fara í góðu formi inn í næsta vet­ur. Sum­ir eru bún­ir að vera dug­leg­ir en aðrir hafa misst takt­inn sem er skilj­an­legt, en ég hvet fólk til að fara sem fyrst af stað eða um leið og tím­inn er rétt­ur – sem er jú mis­jafnt hjá fólki. Per­sónu­lega hlakk­ar mér líka mjög mikið að halda áfram að þjálfa ung­menni á aldr­in­um 16-20 ára en nýtt nám­skeið og byrj­ar 17. maí,“ seg­ir Gurrý.

Í sum­ar ætl­ar Gurrý að njóta þess að vera til, fara í fjall­göng­ur, skemmta sér með góðum vin­um, þjálfa fólkið sitt í Yama og borða góðan mat. „Ég kýs ein­falda rétti sem þarf ekki of mik­inn tíma til að græja – smoot­hie, sal­at, chia-graut­ar og nachos eru alltaf í upp­á­haldi og sunnu­dagslærið hef­ur verið hefð í mörg ár hjá fjöl­skyld­unni,“ seg­ir Gurrý að lok­um.

Mánu­dag­ur:

Þriðju­dag­ur:

Miðviku­dag­ur:

Fimmtu­dag­ur:

Föstu­dag­ur:

Laug­ar­dag­ur:

Sunnu­dag­ur:

Mbl.is/​aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert