Það þarf ekki mikið til að flíkka upp á gamla eldhúsinnréttingu – því oft er nóg að skipta um höldur. Hér eru nokkrar höldur sem við fundum á búðarrölti á netinu.
Silfurlitaðar skápahöldur frá House Doctor, fáanlegar í nokkrum stærðum hjá Fakó.
Mbl.is/House Doctor
Antíkhöldur með kúptu formi, hjá versluninni Brynju á Laugavegi.
Mbl.is/Brynja
Formfagrar og gylltar skápahöldur frá Ferm Living. Fæst í Epal.
Mbl.is/Ferm Living
Leðurhanki er öðruvísi lausn að skápahöldum – fæst í mörgum litum í versluninni Kokku.
Mbl.is/Handles and more