Helgarkokteillinn - ástaraldin og vanillu gin

Sumarlegur og frískandi drykkur í boði Hildar Rutar.
Sumarlegur og frískandi drykkur í boði Hildar Rutar. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér er held­ur bet­ur sum­ar í glasi, í girni­leg­um og frísk­andi kokteil með ástar­ald­in og vanillu gini. Áferðin á drykkn­um er unaðsleg og froðan set­ur punkt­inn yfir i-ið að sögn Hild­ar Rut­ar sem á heiður­inn að þess­um svala­drykk.

Helgarkokteillinn - ástaraldin og vanillu gin

Vista Prenta

Helgar­kokteill­inn - ástar­ald­in og vanillu gin (1 kokteill)

  • 5 cl gin
  • 3 cl safi úr sítr­ónu
  • 3 cl syk­urs­íróp með vanillu
  • 1 ástar­ald­in
  • 1 eggja­hvíta
  • Klak­ar

Aðferð:

  1. Hellið gini, safa úr sítr­ónu, syk­urs­írópi með vanillu og eggja­hvítu í kokteila­hrist­ara ásamt inni­hald­inu úr ástar­ald­ini. Hristið vel í 15 sek­únd­ur.
  2. Bætið klök­um sam­an við (mér finnst best að hafa þá stóra) og hristið í 30 sek­únd­ur.
  3. Hellið í glas og skreytið með ástar­ald­in. Njótið

Syk­urs­íróp með vanillu

  • 100 g syk­ur
  • 1 dl vatn
  • 3 tsk. vanillu extract

Aðferð:

  1. Setjið vatn, syk­ur og vanillu extract í pott.
  2. Bræðið syk­ur­inn á væg­um hita og hrærið þar til hann leys­ist upp. Kælið. Tek­ur nokkr­ar mín­út­ur.
  3. Ég helli syk­urs­íróp­inu ofan í flösku með tappa og geymi í ís­skáp. Það geym­ist í um 1 mánuð.
Mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert