Ómótstæðilegar vorrúllur að hætti Hildar Rutar

Girnilegar avókadó vorrúllur með kóríander sósu að hætti Hildar Rutar.
Girnilegar avókadó vorrúllur með kóríander sósu að hætti Hildar Rutar. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

„Það eru ör­ugg­lega fleiri en ég sem elska „avoca­do eggroll“ á Cheeseca­ke factory í Banda­ríkj­un­um. En sá rétt­ur er fyr­ir­mynd­in af þess­ari upp­skrift“, seg­ir Hild­ur Rut um upp­skrift­ina. Vor­rúll­ur fyllt­ar með avóka­dó, tómöt­um, kóí­and­er og blaðlauki born­ar fram með góm­sætri . Hild­ur seg­ir upp­skrift­ina vera lítið mál að gera og mæl­ir með að all­ir prófi að smakka.

Ómótstæðilegar vorrúllur að hætti Hildar Rutar

Vista Prenta

Ómót­stæðileg­ar avóka­dó vor­rúll­ur (6 rúll­ur)

  • 2 stór avóka­do (eða 3 lít­il avóka­dó)
  • 1-2 tóm­at­ar
  • 2 msk. kórí­and­er
  • 3 msk. blaðlauk­ur
  • Safi úr ½ lime
  • Chili flög­ur
  • Salt og pip­ar
  • Egg
  • 2 dl olía (ég notaði steik­ingarol­í­una frá Olifa)
  • Fílódeig (Fæst til­búið og frosið í t.d. Hag­kaup)

Kórí­and­er sósa

  • 3 msk. sýrður rjómi
  • 1 msk. maj­ónes
  • 3 msk. kórí­and­er
  • Safi úr ½ lime
  • ½ tsk li­me­börk­ur
  • Salt og pip­ar
  • Smá hvít­lauks­duft

Aðferð:

  1. Stappið avóka­dóið gróf­lega með kart­öflustapp­ara eða notið annað áhald til að stappa.
  2. Skerið tóm­at­ana, kórí­and­er og blaðlauk smátt og hrærið sam­an við avóka­dóið. Kreistið safa úr lime og kryddið með salti, pip­ar og chili flög­um.
  3. Skerið fílódeigið í 6 fern­inga. Ein plata af deig­inu ger­ir 2 skammta.
  4. Dreifið avóka­dóstöpp­unni jafnt í miðjuna á öll­um skömmt­un­um.
  5. Pískið egg og penslið horn­in á deig­inu.
  6. Pakkið deig­inu sam­an eins og um­slagi og myndið úr því 6 rúll­ur. Farið var­lega af því að deigið er viðkvæmt. Ef það kem­ur gat á deigið þá er gott að taka bút af deig­inu, bleyta það með egg­inu og setja yfir gatið.
  7. Hitið ol­í­una í háum potti.
  8. Steikið vor­rúll­urn­ar upp úr ol­í­unni þangað til að þær verða gyllt­ar og stökk­ar. Passið að olí­an sé orðin vel heit. Mér finnst gott að dýfa viðarskapti á skeið í ol­í­una og þegar hún er orðin heit þá bull­sýður viður­inn.
  9. Skerið vor­rúll­urn­ar í tvennt, berið fram með kórí­and­er sós­unni og njótið.

Kórí­and­er sósa

  1. Saxið kór­and­er­inn smátt og blandið öll­um hrá­efn­un­um sam­an í skál. Berið fram með vor­rúll­un­um.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert