Guðrún í Kokku velur vikuseðilinn

Guðrún Jóhannesdóttir eigandi Kokku.
Guðrún Jóhannesdóttir eigandi Kokku. mbl.is/Arnþór Birkisson

Við feng­um Guðrúnu í Kokku til að setja sam­an viku­seðil­inn, en Guðrún er án efa sú þekkt­asta í fag­inu þegar kem­ur að því að finna réttu græj­urn­ar í eld­húsið – enda er Kokka stút­full af ómiss­andi áhöld­um fyr­ir sæl­kera­kokka. Guðrún seg­ir fjöl­skyld­una borða fjöl­breytt­an mat og æ fleiri græn­met­is­rétt­ir hafi ratað á mat­seðil­inn eft­ir að eldri dótt­ir­in hætti að borða kjöt. En þegar þau splæsi í kjöt sé það gjarn­an gras­fóðrað beint frá Hálsi í Kjós.

Það er í nógu að snú­ast hjá Guðrúnu þessa dag­ana því fjöl­skyld­an stend­ur í flutn­ing­um og eins eru breyt­ing­ar í vænd­um hjá Kokku. „Ég er að und­ir­búa flutn­inga og dunda mér við að pakka í kassa – á meðan Steini eld­ar mat­inn. Mark­miðið er að pakka í minnst þrjá kassa á dag, og það geng­ur bara nokkuð vel. Ég ætla að pakka eld­húsáhöld­un­um síðast til að tryggja að ég fái gott að borða þótt allt sé að hvolfi, og er búin að lofa að koparp­ann­an fari síðust niður og fyrst upp. Það verður líka nóg að gera eft­ir flutn­inga því við ætl­um að færa eld­húsið á nýja staðnum og erum núna að reyna að ákveða lit­inn á ILVE-elda­vél­inni í nýja eld­húsið,“ seg­ir Guðrún í sam­tali og bæt­ir við: „Eins erum við að und­ir­búa stækk­un á Kokku og fáum von­andi bygg­ing­ar­leyfi á næstu dög­um. Þá för­um við á fullt í fram­kvæmd­ir á efri hæðinni á Lauga­veg­in­um,“ seg­ir Guðrún og við tök­um und­ir að það séu spenn­andi tím­ar fram und­an hjá Kokku-fjöl­skyld­unni.

Mánu­dag­ur

Þriðju­dag­ur

Miðviku­dag­ur

Fimmtu­dag­ur

Föstu­dag­ur

Laug­ar­dag­ur

Sunnu­dag­ur

ILVE, glæsilegustu eldavélar landsins, fást í versluninni Kokku.
ILVE, glæsi­leg­ustu elda­vél­ar lands­ins, fást í versl­un­inni Kokku. mbl.is/​ILVE
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert