Flottustu brauðtertuskreytingar sem sést hafa

Mbl.is/Collect/PA Real Life

Ef að brauðtertu­fé­lag Erlu & Erlu fer ekki á hliðina núna þá vit­um við ekki hvað. Reynd­ar er hér ekki um að ræða brauðtert­ur held­ur focaccia brauð en í okk­ar huga gild­ir það einu.

Andrea er sjálflærður bak­ari og not­ar list­ræna hæfi­leika til að skreyta ótrú­leg focaccia brauð sem líkj­ast fal­leg­um lista­verk­um.

Hún heit­ir Andrea Huss­ey og er ein­stak­lega hug­mynda­rík og skap­andi er kem­ur að því að baka og skreyta focaccia, þar sem hún not­ar lit­rík hrá­efni á borði við ra­dís­ur, rauðan og fjólu­blá­an lauk, ristaða rauða papríku, basil, ólíf­ur og chili. Andrea seg­ist baka til að slaka á, rétt eins og aðrir sem draga fram pensil­inn og byrja að mála, þá skreyt­ir hún brauð og það get­ur tekið allt að sex klukku­tíma að búa til eitt lista­verk. Andrea borðar þó ekki brauðin sjálf þar sem hún er á lág­kol­vetnamataræði, en son­ur henn­ar elsk­ar brauðin - eins bak­ar hún focaccia og fær­ir vin­um sem gesta­gjöf í stað þess að mæta með blóm.

Andrea býr í ein­stöku húsi ásamt eig­in­manni og syni í Sri Lanka - þar rækt­ar hún sitt eigið græn­meti og krydd og býr til karrí­duft frá hrá­efn­um úr garðinum. Þar fyr­ir utan rækt­ar hún kó­kos­hnet­ur, ástríðuávöxt, an­an­as, kanil, pip­ar og margt fleira en hana lang­ar til að stofna mat­reiðslu­skóla í framtíðinni, þar sem gest­ir fá þjálf­un hjá mat­reiðslu­mönn­um.

Ótrúlega fallega skreytt focaccia brauð.
Ótrú­lega fal­lega skreytt focaccia brauð. Mbl.is/​Col­lect/​PA Real Life
Mbl.is/​Col­lect/​PA Real Life
Mbl.is/​Col­lect/​PA Real Life
Andrea Hussey er sjálflærður bakari sem borðar ekki brauðin sín …
Andrea Huss­ey er sjálflærður bak­ari sem borðar ekki brauðin sín sjálf. Mbl.is/​Col­lect/​PA Real Life
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert