Sushibitarnir sem settu netið á hliðina

Oreo sushi er það heitasta í dag samkvæmt TikTok.
Oreo sushi er það heitasta í dag samkvæmt TikTok. Mbl.is/@siennasweets/TikTok

Nýtt mataræði virðist vera að ryðja sér til rúms ef marka má nýj­ustu frétt­ir á net­inu. Fólk er að búa til Oreo-sus­hi og borðar það með prjón­um. Og það besta er að þú þarft ein­ung­is tvö hrá­efni – Oreo og mjólk.

Fyrst af öllu þarftu að fjar­lægja allt kremið af kex­inu og mylja síðan smá­kök­urn­ar niður – setja þær í poka og rúlla yfir með köku­kefli. Settu muln­ing­inn í skál og bættu mjólk sam­an við þar til bland­an verður lím­kennd. Blandaðu einnig sam­an í ann­arri skál krem­inu sem var á kex­kök­un­um. Settu nú kökumuln­ing­inn á plast­filmu og aðra yfir og byrjaðu að rúlla yfir þar til muln­ing­ur­inn verður flatur. Smyrðu þá krem­inu ofan á og rúllaðu svo upp áður en þú skerð í bita.

Upp­skrift­in er að sjálf­sögðu að gera allt vit­laust á TikT­ok, því það er þar sem fólk virðist eyða tím­an­um sín­um í dag og má sjá nán­ar hér fyr­ir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert