Nýtt bragð á vinsælustu flögum heims

Hvernig líst ykkur á þessa nýjung? Doritos með jarðaberjum og …
Hvernig líst ykkur á þessa nýjung? Doritos með jarðaberjum og rjóma! Mbl.is/Getty images_Doritos

Jarðarber og rjómi virðast vera það heit­asta í sum­ar og nú hef­ur einn vin­sæl­asti flögu­fram­leiðandi heims, Do­ritos, af­hjúpað nýj­ustu bragðteg­und­ina sína sem inni­held­ur þessa tvennu.

Snakk­fram­leiðand­inn kynnti nýju flög­urn­ar á in­sta­gramsíðunni sinni, þar sem þeir segja: „Straw­berries and cream Do­ritos, you didn't ask for them, but you'll def­initely want to try them.“ Tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins vilja þó ekki gefa upp ná­kvæm­ar dag­setn­ing­ar á því hvenær snakkið muni rata í versl­an­ir, en hafa þó sann­ar­lega fengið neyt­and­ann til að velta upp spurn­ing­um varðandi snakkið í at­huga­semd­um. Sum­ir halda því fram að þetta sé ein­hver grikk­ur en öðrum finnst nýj­ung­in bæði hrika­leg og for­vitni­leg á sama tíma. Engu að síður er þetta eitt­hvað sem verður að smakk­ast  sama hvað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert