Brauðbollu-uppskrift með leynihráefni

Það jafnast ekkert á við nýbakað á morgnana.
Það jafnast ekkert á við nýbakað á morgnana. Mbl.is/

Hér er eng­in venju­leg bollu­upp­skrift á ferð, því þessi geym­ir leyni­hrá­efni sem þú munt elska. Og það besta er að þú get­ur gert hana deg­in­um áður og geymt í kæli yfir nótt. Full­komið fjöl­skyld­unasl eða í helgar­bröns­inn.

Brauðbollu-uppskrift með leynihráefni

Vista Prenta

Brauðbollu-upp­skrift með leyni­hrá­efni

  • 10 g ger
  • 2,5 dl mjólk
  • 2,5 dl kalt vatn
  • 2 tsk. salt
  • 800 g hveiti

Fyll­ing

  • 100 g hrátt marsíp­an
  • 100 g gott dökkt súkkulaði

Aðferð:

  1. Smuldrið ger­inu yfir helm­ing­inn af mjólk­inni. Bætið því næst rest­inni af mjólk­inni sam­an við, ásamt vatni og salti. Því næst kem­ur hveitið út í og deigið hnoðað þar til slétt og fínt.
  2. Látið hef­ast í kæli í 10-15 tíma.
  3. Rífið marí­sp­an niður með gróf­ari hlut­an­um á rif­járn­inu. Saxið súkkulaðið og bætið hvoru tveggja út í deigið.
  4. Formið deigið í 10 stór­ar boll­ur og leggið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu. Látið hef­ast í 30 mín­út­ur.
  5. Penslið boll­urn­ar með pískuðu eggi og stráið perlu­sykri yfir.
  6. Bakið við 225° í 15 mín­út­ur eða þar til bakaðar í gegn.
  7. Látið kólna á rist og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert