Draumavikumatseðill Sólveigar Andersen

Mathöll Höfða nýtur mikilla vinsælda, enda fjölbreyttir staðir á besta …
Mathöll Höfða nýtur mikilla vinsælda, enda fjölbreyttir staðir á besta stað í bænum. Mbl.is/Arnþór Birkisson

Þessa vik­una vel­ur Sól­veig And­er­sen, eig­andi Mat­hall­ar Höfða, fyr­ir okk­ur viku­seðil­inn – en Sól­veig fær­ir okk­ur spenn­andi mat­seðil og spenn­andi frétt­ir úr „höll­inni“. Þegar við náðum tali af Sól­veigu var hún ný­kom­in heim frá Spáni, þar sem hún naut lífs­ins og drakk sól í lítra­tali – end­ur­nærð og full af orku. „Tíma­setn­ing­in var full­kom­in fyr­ir þetta frí, því við misst­um af öllu leiðinda­veðrinu hér í júní og kom­um heim með full­an tank af D-víta­míni,“ seg­ir Sól­veig.

Það eru spenn­andi tím­ar hjá Mat­höll Höfða, en um miðjan mánuðinn stækk­ar Mat­höll­in og um leið bæt­ast við tveir nýir staðir seg­ir Sól­veig okk­ur. „Það er Pasta­gerðin, en hún hef­ur slegið í gegn með past­anu sínu sem er ferskt pasta fram­leitt af starfs­fólk­inu sjálfu og geggjaðar sós­ur. Einnig er að opna hjá okk­ur Dragon Dim Sum, en eig­end­urn­ir að þeim stað eru líka með Mat­b­ar og eru mjög metnaðarfull­ir mat­reiðslu­menn. Þetta er eini al­vöru dumplings-staður­inn á land­inu og hlökk­um við mikið til að fá hann í hóp­inn hjá okk­ur. Þá erum við kom­in með tíu staði í húsið, hvern með sitt sér­svið. Þetta er ein­mitt það skemmti­leg­asta við Mat­hall­ir, að þú get­ur fengið ljúf­feng­an mat frá mis­mun­andi aðilum und­ir sama þaki,“ seg­ir Sól­veig í sam­tali.

Sól­veig seg­ir okk­ur að þau hafi und­an­farið verið með mat­reiðslu­mann frá Mexí­kó til að taka all­an mat­seðil­inn á Culiacan í gegn. Á nýja mat­seðlin­um eru t.d. tacos sem þau fram­leiða al­veg frá grunni. Kokk­ur­inn bak­ar sjálf­ur mjúk­ar glút­en­laus­ar korn-tortill­ur og hæg­eld­ar nauta­kjöt, eins mexí­kóskt og það ger­ist. Það fer alls ekk­ert á milli mála að nýi mat­seðill­inn verður að smakk­ast – enda erum við for­falln­ir taco-aðdá­end­ur hér á Mat­ar­vefn­um.

Hvað er svo á döf­inni hjá Sól­veigu út sum­arið? „Stefn­an er að vera dug­leg að fara í úti­leg­ur í sum­ar, en síðustu helgi var ég í Húsa­felli sem mér finnst al­gjör draum­ur. Ég ætla samt að vera í bæn­um helg­ina 15.-17. júlí því þá verður sum­ar­hátíð í Mat­höll­inni. Við náðum aldrei að halda upp á af­mæli Mat­hall­ar­inn­ar því Covid skall á ná­kvæm­lega einu ári eft­ir að við opnuðum. Þetta verður því eins kon­ar af­mæl­is-, stækk­un­ar- og sum­ar­hátíð“, seg­ir Sól­veig að lok­um.

Mánu­dag­ur:
Þessi er snilld eft­ir helg­ina þegar maður á það til að tryll­ast aðeins í kol­vetn­un­um. Þarna fær maður kol­vetnafrí, en samt fisk og fullt af gúmm­ulaði.

Þriðju­dag­ur:
Taco Tu­es­day er al­veg heil­agt fyr­ir mér. Við erum alltaf með taco á þriðju­dög­um og í þess­ari upp­skrift er ein­mitt mælt með korntortill­um. Við vor­um að byrja að baka glút­en­laus­ar korntortill­ur á Culiacan.

Miðviku­dag­ur:
Frek­ar ein­fald­ur og flott­ur rétt­ur fyr­ir alla fjöl­skyld­una.

Fimmtu­dag­ur:
Þetta sal­at finnst okk­ur al­gjört æði. Partý hjá bragðlauk­un­um, mikið af græn­meti og kjúk­lingi. Er hægt að biðja um meira?

Föstu­dag­ur:
Föstu­dagspizz­an er hefð á mínu heim­ili. Þá fá all­ir að velja sitt álegg og við tök­um góðan tíma í að fletja út og setja sam­an. Stund­um skell­ir maður­inn minn þeim á grillið en það er klár­lega á óskalist­an­um að kaupa al­vörup­izza­ofn á pall­inn.

Laug­ar­dag­ur:
Þessi hljóm­ar mjög vel, held reynd­ar að allt sem Jói Fel ger­ir sé gott. Góð steik og rauðvín á laug­ar­dags­kvöldi – ég slæ ekki hend­inni á móti því.

Sunnu­dag­ur:
Ég ætla nú ekki að ljúga því að ég sé alltaf með lamba­steik á sunnu­dög­um, en mikið væri ég til í það. Það er fátt betra en að enda vik­una með góðu lamba­læri með miklu meðlæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert