Brúðarterta Gwen Stefani var stórbrotin

Stjörnuparið Gwen Stefani og Blake Shelton, giftu sig nú á …
Stjörnuparið Gwen Stefani og Blake Shelton, giftu sig nú á dögunum og kakan var með glæsilegasta móti. Mbl.is/JEREMY BUSTOS

Þegar tón­listar­fólkið Gwen Stef­ani og Bla­ke Shelt­on gengu í hjóna­band um síðustu helgi passaði brúðurin upp á að heiðra for­eldra sína á stóra deg­in­um með brúðart­ert­unni.

Kak­an var gerð af Fancy Ca­kes By Lauren, sem deildi mynd­um af henni á in­sta­gramsíðunni sinni  enda er kak­an eitt stórt meist­ara­verk. Þar seg­ir Lauren að þetta hafi ekki verið nein venju­leg kaka, því hún var gerð fyr­ir tvær stór­stjörn­ur. Og þar fyr­ir utan vildi Gwen end­ur­skapa brúðart­ertu for­eldra sinna, sem voru að sjálf­sögðu á staðnum þegar Gwen og Bla­ke játuðu ást sína fyr­ir fram­an Guð og menn.

Þessi ein­staki kökustíll er kallaður „Lambeth Cake Design“ og hef­ur dá­lítið týnst í köku­skreyt­ing­ar­flór­unni í gegn­um árin þar sem mikið af smá­atriðum felst í hverj­um senti­metra eins og í þess­ari til­teknu köku sem er heil­ar fimm hæðir – fag­ur­lega skreytt með súl­um, bjöll­um og syk­ur­blóm­um svo eitt­hvað sé nefnt. Og við telj­um það nokkuð ör­uggt að þessi til­tekna kaka sé að fara að skjóta „Lambeth“-stíln­um aft­ur á kortið.

Kakan var nákvæm eftirmynd af brúðartertu foreldra Gwen.
Kak­an var ná­kvæm eft­ir­mynd af brúðart­ertu for­eldra Gwen. Mbl.is/ In­sta­gram_F­ancy Ca­kes By Lauren
Margir litlir díteilar skreyta kökuna.
Marg­ir litl­ir díteil­ar skreyta kök­una. Mbl.is/ In­sta­gram_F­ancy Ca­kes By Lauren
Mbl.is/ In­sta­gram_F­ancy Ca­kes By Lauren
Mbl.is/ In­sta­gram_F­ancy Ca­kes By Lauren
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert