Tíu heitustu kokteilbarirnir í Köben

Það eru marga flotta kokteilbari að finna í Kaupmannahöfn.
Það eru marga flotta kokteilbari að finna í Kaupmannahöfn. mbl.is/Bar Next Door

Land­inn er far­inn að renna sér í gegn­um frí­höfn­ina og stökkva upp í næstu flug­vél í leit að nýj­um æv­in­týr­um. Einn af vin­sæl­ustu áfanga­stöðum Íslend­inga er Kaup­manna­höfn og hér eru tíu heit­ustu kokteil­bar­irn­ir fyr­ir þyrsta ferðalanga.

Bar Next Door
Í hjarta Nør­re­bro finn­ur þú Bar Next Door, með góðum kokteil­um og æðis­legu út­sýni sem skemm­ir ekki upp­lif­un­ina. Sjá nán­ar HÉR.

Duck and Co­ver
Hér er ró­leg og af­slöppuð stemn­ing, þar sem til­valið er að hlaða batte­rí­in með ís­kald­an kokteil við hönd. Sjá nán­ar HÉR.

Noho
Í allri mat­ar­menn­ing­ar­flór­unni sem finna má í Kød­byen er Noho einn af þeim sem vert er að heim­sækja. Bar­inn sjálf­ur er lýst­ur upp með bleik­um neon­ljós­um og býður upp á breitt úr­val af drykkj­um. Sjá nán­ar HÉR.

Brønn­um
Bar með sögu! Brønn­um er til húsa í sögu­legu rými þar sem kaffi­hús, bar­ir og veit­inga­hús hafa staðið síðustu 125 árin. Þetta er staður­inn þar sem tón­listar­fólk og fræg­ir rata inn – og sag­an seg­ir að H.C. And­er­sen hafi verið einn af þeim sem sóttu staðinn áður fyrr. Sjá nán­ar HÉR.  

Ruby
Heim­il­is­leg stemn­ing á heimsklassa­bar með út­sýni yfir höfn­ina – þar sem þú finn­ur einnig út­i­rými í bak­g­arðinum. Sjá nán­ar HÉR.

Dahl og Dahl
Hér er staður sem eng­inn fer þyrst­ur út frá, enda er kokteila­seðill­inn með þeim flott­ustu í bæn­um og staður­inn sjálf­ur iðar af huggu­leg­heit­um. Sjá nán­ar HÉR.

Cur­few
Það má víst ekki gleyma þess­um stað hér – sem þekkt­ast­ur er fyr­ir el­eg­ant díteila í inn­rétt­ing­um. Staður­inn var opnaður aft­ur eft­ir end­ur­bæt­ur í júní­mánuði. Sjá nán­ar HÉR.

Lidkoeb
Í bak­g­arði við Vester­broga­de er Lidkoeb að finna. Ró­leg stemn­ing og stór bak­g­arður til að njóta á meðan veður leyf­ir. Sjá nán­ar HÉR.

Mós­hú
Nýr og spenn­andi staður með asísku ívafi. Hér er ekki vit­laust að bóka borð þar sem aðsókn­in er það mik­il. Sjá nán­ar HÉR.

Salon 39
Á horn­inu á Frederiks­berg finn­urðu Salon 39. Hér eru fransk­ir smá­rétt­ir á mat­seðli og kokteil­ar í lítra­vís. Sjá nán­ar HÉR.

Noho er einn vinsælasti barinn í Köben þessi dægrin og …
Noho er einn vin­sæl­asti bar­inn í Kö­ben þessi dægrin og það ekki að ástæðulausu. mbl.is/​Noho
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert