Pítsuáleggið sem brýtur öll lögmál

Eigendur staðarins Smashed Tomato Pizza.
Eigendur staðarins Smashed Tomato Pizza. Mbl.is/SWNS

Ávext­ir á pítsu hafa verið vin­sæl­ir til margra ára, eins og til dæm­is an­an­as – þó að menn séu mis­hrifn­ir af slíku sem áleggi. En hér er pítsa sem brýt­ur alla skala og þykir hrein­asta ljúf­meti.

Um er að ræða svo­kallað hita­belt­isálegg, eða ban­ana, sem er að gera góða hluti á pítsustaðnum Smashed Tom­ato Pizza í Bretlandi. Auk ann­ars áleggs á um­ræddri pítsu eru bei­kon og bbq-sósa – og þykir sam­setn­ing­in stór­kost­leg. Eig­andi staðar­ins seg­ir pítsuna hafa sjokk­erað marga í fyrstu en sé núna sú vin­sæl­asta á mat­seðli  fólk sæki í bök­una aft­ur og aft­ur.

Inn­blástur­inn að pítsunni sæk­ir eig­and­inn til bernsku­ferðal­ega til Suður-Afr­íku, þar sem sam­setn­ing­in ban­an­ar og bei­kon er stöðluð.

Pítsa með bönunum, beikon og bbq sósu!
Pítsa með bön­un­um, bei­kon og bbq sósu! Mbl.is/​SWNS
Mbl.is/​SWNS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert