Gleymdi grillinu og reddaði sér svona

Fólk í útilegum beitir ýmissa ráða þegar kemur að eldamennsku.
Fólk í útilegum beitir ýmissa ráða þegar kemur að eldamennsku. Mbl.is/gentside.com

Það mætti halda að yfir sum­ar­tím­ann séu tjaldsvæðin yf­ir­full af sjálflærðum skát­um sem kunna að bjarga sér, þegar fólk tjald­ar í nátt­úr­unni og get­ur ekki stuðst við öll þau eld­húsáhöld eins og venja er.

Útil­eg­ur geta skilið eft­ir tak­markaða val­kosti þegar áhöld­in vant­ar eða kol­in eru búin á grill­inu. Þá hafa menn og kon­ur gripið í það ráð að elda puls­ur án þess að smella þeim á grillið. En hvernig er farið að því? Jú, eina sem til þarf er brúsi og sjóðandi heitt vatn. Þú set­ur sjóðandi heitt vatn í brús­ann og smell­ir puls­un­um þar ofan í – því puls­ur eru í raun eldaðar og þurfa aðeins að fá „hita í kropp­inn“.

Mbl.is/@​ramsay1512_­Andrew Ramsay
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert