Nýbakað brauð með blómum úr garðinum

Brauð með blómum er sumarlegt og sérlega gott.
Brauð með blómum er sumarlegt og sérlega gott. Mbl.is/Boligmagasinet_Frederikke Heiberg

Hér er brauðupp­skrift sem þú munt vilja bera fram fyr­ir gesti – því það er glæsi­legt og um­fram allt svaka­lega gott. Brauðið má skreyta með æti­leg­um blóm­um sem auðvelt er að nálg­ast, eins og til dæm­is fjól­um.

Nýbakað brauð með blómum úr garðinum

Vista Prenta

Nýbakað brauð og blóm úr garðinum

  • 300 g hveiti
  • 100 g heil­hveiti
  • 50 g haframjöl
  • 2 dl kefír
  • 1 tsk. salt
  • 1,5 dl heitt vatn
  • 25 g ger
  • 3 msk. ólífu­olía
  • 1 msk. hun­ang
  • 1 egg til að pensla

Aðferð:

  1. Blandið sam­an kefír og heitu vatni og leysið upp gerið.
  2. Blandið of­an­greind­um hrá­efn­um sam­an við og hnoðið vel sam­an.
  3. Látið hef­ast við stofu­hita í 30 mín­út­ur.
  4. Formið deigið í kúlu og látið standa í 10 mín­út­ur.
  5. Hnoðið aðeins bet­ur sam­an og leggið í smellu­form. Látið hef­ast í 25 mín­út­ur.
  6. Penslið með eggi.
  7. Stráið hveiti yfir deigið og skerið lang­ar ræm­ur í deigið, og setjið æt blóm þar ofan í.
  8. Bakið við 200°C í 30-35 mín­út­ur.
  9. Skreytið með blóm­um og berið fram.

Upp­skrift: Bolig­magasinet

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert