Aðalsteinn Sverrisson eða Alli, eins og hann kýs að vera kallaður, er á fullu að undirbúa sig fyrir kosningar í haust, en gaf sér tíma og færir okkur afar girnilegan matseðil þessa vikuna.
Alli skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík suður þar sem málefni barna eru í forgrunni. „Ég er að henda mér í þessa baráttu til að vinna að málefnum barna og þá sérstaklega að uppbyggingu og þróun á skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni tengt stafrænum áhugamálum. Við þurfum svo nauðsynlega að kenna okkar börnum að umgangast tölvuleiki, samfélagsmiðla o.s.frv. – með ábyrgum hætti svo að þau blómstri í sínum áhugamálum og séu virkir þátttakendur í samfélaginu,“ segir Alli.
Auk kosningabaráttunnar er Alli mikill sjósundgarpur og segist vera farið að hlakka mikið til kólnandi hitastigs í sjónum sem haustið færir með sér. „Sjósund er allra meina bót, ég sef alltaf betur þá daga sem ég sprikla í sjónum”, segir hann að lokum, en hægt er að fylgjast með málefnum Aðalsteins og Framsóknar í Reykjavík HÉR.
Mánudagur:
Þriðjudagur:
Miðvikudagur:
Fimmtudagur:
Föstudagur:
Laugardagur:
Sunnudagur: