Pítsan sem er að setja allt á hliðina

Pítsa með súrum gúrkum - má bjóða þér!
Pítsa með súrum gúrkum - má bjóða þér! Mbl.is/VIA QCPIZZA.COM

Fólk sem elsk­ar súr­ar gúrk­ur hef­ur verið að koma þeim að í mat­ar­gerð á mjög áhuga­verðan máta síðustu miss­eri – og nú á pítsu sem hef­ur sprengt alla skala.

Þessi súrsaða pítsa, sem kall­ast „Kinda Big Dill“, var upp­götvuð árið 2018 í Minnesota og er sprott­in út frá svo­kölluðu „Minnesota sus­hi“, sem eru súrsaðar gúrk­ur vafðar í rjóma­ost og skinku og skorið í sneiðar. Píts­an aft­ur á móti inni­held­ur hvít­lauks­dillsósu, kanadískt bei­kon, mozzar­ella­ost, ferskt dill og að sjálf­sögðu súr­ar gúrk­ur. Þessi sam­setn­ing mun sprengja í þér bragðlauk­ana að sögn heim­ild­ar­manna og ilm­ur­inn af henni er sá besti.

Svona býrðu til súrsaða pítsu:

  1. Hitið ofn­inn í 200°C.
  2. Búðu til þitt eigið deig eða keyptu úti í búð. Passið að deigið sé ekki of þunnt.
  3. Leggðu áleggið á pítsuna í eft­ir­far­andi röð; hvít­lauks­dillsósa, bei­kon, súr­ar gúrk­ur, mozzar­ella, annað lag af súr­um gúrk­um og ferskt dill.
  4. Hitið pítsuna í ofni þar til kant­arn­ir verða gyllt­ir.
  5. Skerið pítsuna í lang­ar ræm­ur frek­ar en þrí­hyrnd­ar sneiðar. Það er öðru­vísi stemn­ing og kem­ur á óvart.
Mbl.is/​VIA QCP­IZZA.COM
Mbl.is/​VIA QCP­IZZA.COM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert