Svona er mataræði Britney Spears

Poppsöngkonan Britney Spears hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarið.
Poppsöngkonan Britney Spears hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarið. mbl.is/AFP

Popp­stjarn­an fræga deildi því á In­sta­gram að hún sé meðvituð um nær­ingu sína og reyni að halda í við kær­ast­ann sinn, einkaþjálf­ar­ann Sam Asghari.

Brit­ney Spe­ars reyn­ir að halda í við kær­ast­ann sinn með því að hlaupa mikið og borða holl­an mat – en um­fram allt að vera meðvituð um það sem hún læt­ur ofan í sig. Nema þegar hún svindl­ar á mataræðinu, eins og hef­ur margoft gerst að henn­ar sögn. Mat­ur­inn bragðast nefni­lega bet­ur þegar maður leyf­ir bragðlauk­un­um að gæla við mat­inn og velta áferðinni og bragðefn­un­um fyr­ir sér.

Brit­ney tal­ar einnig um að hún sé ánægð með að grenn­ast, en að sama skapi finnst henni hún þurfa að styrkja sig meira og byrjaði að æfa box. Það hef­ur gefið henni aukið sjálfs­traust og vellíðan að finna fyr­ir vöðvun­um líka. En bæt­ir því við að hún sé afar lík­leg til að falla aft­ur í gryfj­una með rusl­fæði og sæt­indi – og þar erum við sann­ar­lega ekki til að dæma.



Poppdívan hefur ákveðið að snúa blaðinu við varðandi mat og …
Popp­dív­an hef­ur ákveðið að snúa blaðinu við varðandi mat og drykk. Mbl.is/​In­sta­gram_Brit­ney Spe­ars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert