Bragðgóður og öðruvísi pastaréttur sem kemur skemmtilega á óvart, svo ekki sé meira sagt! Sósan er látin bullsjóða svo áfengið sýður að mestu leyti í burtu en eftir stendur spennandi undirtónn eða keimur sem gefur réttinum nýstárlegt bragð.
Höfundur þessar uppskriftar er Helena Gunnarsdóttir sem gefur þessari uppskrift ótvíræðan gæðastimpil.
Rjómalagað pasta með leynihráefni sem kemur á óvart
Rjómalagað vodka pasta
- 3 skammtar
- 300 g pasta, t.d. penne eða rigatoni
- 2 msk. smjör
- 1 stk. lítill laukur, smátt saxaður
- 2 stk. hvítlauksrif, smátt söxuð
- 1 dl vodka
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 2 msk. tómatpúrra
- 250 ml rjómi frá Gott í matinn
- rifinn Óðals Tindur eftir smekk
- salt, pipar og chili flögur, eftir smekk
- fersk basilíka, má sleppa
Aðferð:
- Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakka.
- Bræðið smjör á pönnu og steikið lauk og hvítlauk þar til mýkist.
- Kryddið með salti, pipar og chilliflögum.
- Hækkið hitann og hellið vodkanu yfir, leyfið að sjóða í 1-2 mínútur.
- Bætið þá tómatmaukinu og tómatpúrrunni út á ásamt rjómanum.
- Leyfið að malla í 5 mínútur þar til þykknar aðeins og smakkið til með salti, pipar og chiliflögum.
- Bætið soðnu pastanu út á pönnuna og blandið vel saman.
- Toppið með vel af rifnum Óðals Tindi og e.t.v. ferskri basilíku.
- Berið fram strax með rifnum Óðals Tindi.
Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir