Læknirinn skrifar upp á matseðil vikunnar

Læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr.
Læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það er varla hægt að byrja vik­una bet­ur en með mat­seðil að lækn­is­ráði. Ragn­ar Freyr hef­ur sett sam­an rétti fyr­ir vik­una sem tæl­ir bragðlauk­ana – gjörið svo vel. 

Mánu­dag­ur:
Mat­ur­inn þarf að vera fljót­leg­ur á mánu­dags­kvöld­um. Hann má líka gjarn­an vera létt­ur og holl­ur til að vega upp á móti synd­um helgar­inn­ar. Þessi rétt­ur er létt­ur, holl­ur og fljót­leg­ur – en ofar öllu þá er hann sér­stak­lega ljúf­feng­ur. Það elska all­ir tacos!

Þriðju­dag­ur:
Þessi súpa rím­ar ein­stak­lega vel við djúp­ar haust­lægðir. Hún er einnig svo góð að maður hálfpart­inn von­ar að það fari að hvessa bara til að geta gætt sér á þess­ari dá­semd.

Miðviku­dag­ur:

Fyr­ir þá sem vilja eitt­hvað ein­falt um miðja viku, en vilja samt flotta sig aðeins, þá má alltaf henda í lúx­usút­gáfu af hakki og spaghettíi. Þessi upp­skrift er negla!

Fimmtu­dag­ur:
Smá­lúða er einn af mín­um upp­á­halds hvítu mat­fisk­um, kannski að þorsk­in­um und­an­skild­um. Þessi rétt­ur er ein­fald­ur og nokkuð fljót­leg­ur, en ekki síst ótrú­lega góður. Þetta er rétt­ur sem leng­ir helg­ina!

Föstu­dag­ur:
Föstu­dag­ar hafa verið pizzu­dag­ar næst­um því frá því ég fór að búa. Ég hélt að ég væri bú­inn að prófa það mesta und­ir sól­inni í flat­böku­gerð en eft­ir að ég fékk mér viðarofn út í garð er ljóst að ferðalag mitt er rétt að hefjast.

Laug­ar­dag­ur:
Það er fátt sem ég elska meira en ís­lenskt lamba­kjöt. Ég sæki mitt nær alltaf til vin­ar míns Geira í Kjöt­búðinni en hann læt­ur kjötið hanga í kæli áður en hann sel­ur það. Það trygg­ir girni­legt og meyrt kjöt sem hrein­lega bráðnar í munni.

Sunnu­dag­ur:
Þessi rétt­ur er langt frá því að vera mín hug­mynd. Einn af sjúk­ling­um mín­um gauk­ar reglu­lega að mér ljúf­feng­um upp­skrift­um og þessi var ein þeirra. Ég hlakka alltaf til að hitta hana. Þessi upp­skrift er ekki bara veisla fyr­ir bragðlauk­ana held­ur líka fyr­ir augað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert