Besta skipulagsráðið í ísskápinn

Er gott skipulag í ísskápnum þínum?
Er gott skipulag í ísskápnum þínum? mbl.is/

Við elsk­um að sanka að okk­ur góðum skipu­lags­ráðum, svo er spurn­ing hvort við för­um eft­ir þeim öll­um sam­an – það er allt önn­ur saga. En þetta hér snýr að skipu­lag­inu inni í ís­skáp, því þar er líka þörf á að hafa hlut­ina í lagi.

Að sögn fram­kvæmda­stjóra HelloF­resh er alltaf góð hug­mynd að skipu­leggja ís­skáp­inn í sam­ræmi við máltíðir en ekki eft­ir inni­halds­efn­um. Þannig færðu fljótt yf­ir­sýn á morg­un­mat­inn, há­deg­is­mat­inn og kvöld­mat­inn um leið og þú opn­ar ís­skáps­h­urðina. Þessi aðferð mun einnig draga úr mat­ar­sóun, þar sem hvert inni­halds­efni gegn­ir ákveðnu hlut­verki í hverri máltíð fyr­ir sig og gleym­ist ekki aft­ast í ís­skápn­um.
Þetta gæti verið áhuga­verð aðferð að prófa!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert