Meistari Albert færir okkur vikumatseðilinn

Albert „eldar“ færir okkur ljúffengan vikumatseðil.
Albert „eldar“ færir okkur ljúffengan vikumatseðil. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mat­ar­blogg­ar­inn, smekkmaður­inn, royalist­inn og vin­sæl­asti mat­ar­gest­ur lands­ins, Al­bert „eld­ar“ Ei­ríks­son – fær­ir okk­ur vikumat­seðil­inn þessa vik­una. Sér­val­inn og af­skap­lega girni­leg­ur mat­seðill ef þið viljið okk­ar al­veg hlut­lausa mat.

Mánu­dag­ur:
Mánu­dag­ar eru fiski­dag­ar, við erum í átaki að borða oft­ar fisk – a.m.k. þris­var í viku og það er skemmti­legt átak. Gott að byrja mat­ar­vik­una á fiski­boll­um í brúnni lauksósu.

Þriðju­dag­ur:
Vin­ur okk­ar gaf okk­ur hrein­dýra­hakk sem verður að hrein­dýra­boll­um sem Guðlaug­ur Þór er bú­inn að þróa og mastera – al­veg sjúk­lega góðar boll­ur hjá ráðherr­an­um sem er þrusu­kokk­ur.

Miðviku­dag­ur:
Hluti af fiski­átak­inu er að borða feit­an fisk, þannig að lax og aðrir feit­ir fisk­ar eru oft á borðum. Stund­um geri ég mitt pestó sjálf­ur og nota þá aðeins góða ólífu­olíu í hana. Það er gott að hafa í huga að ol­í­ur eru mis­góðar og mis­holl­ar. Fiskiupp­skrift sem get­ur ekki klikkað.

Fimmtu­dag­ur:
Sjúk­lega góði mangó chut­ney-kjúk­linga­rétt­ur­inn, ein­fald­ur fljót­leg­ur og öll­um lík­ar vel.

Föstu­dag­ur:
Nýj­asta upp­á­halds­mat­ar­landið mitt er Portúgal. Hef farið þangað nokkr­um sinn­um og aldrei orðið fyr­ir von­brigðum. Í Portúgal er sagt að til séu 365 upp­skrift­ir að salt­fiski en ég er viss um að þær eru mun fleiri.

Laug­ar­dag­ur:
Það er gam­an að halda í hefðir, ég er al­inn upp við hrís­grjóna­graut í há­deg­inu á laug­ar­dög­um. Eins og kunn­ugt er get­ur verið vanda­samt að sjóða hrís­grjóna­graut, hann get­ur ým­ist orðið of þunn­ur, þykk­ur eða vill brenna við. Skot­held aðferð er að láta suðuna koma upp á löng­um tíma, slökkva þá und­ir og pakka pott­in­um inn í hand­klæði, svunt­ur og fleira og láta standa þannig í nokkra tíma.

Sunnu­dag­ur:
Hæg­eldaður lambahrygg­ur með bernaise-sósu. Gam­an að upp­lifa hvað bernaise er kom­in í tísku enn og aft­ur. Al­vöru-ber­nessósa er ein­stak­lega ljúf­feng og pass­ar vel með lamba­kjöti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert