Drykkurinn sem er bókstaflega að trylla allt

Svín í bolla! Eða réttara sagt, súkkulaði með sykurpúðum,
Svín í bolla! Eða réttara sagt, súkkulaði með sykurpúðum, Mbl.is/Instagram/@Newfoodsuk

Það er sann­ar­lega farið að kólna í veðri og þá er gott að ylja sér við súkkulaðibolla. En þetta gæti flokk­ast und­ir að vera ein af þess­um skrítnu frétt­um sem rata inn á mat­ar­vef­inn - þegar við segj­um ykk­ur frá svíns­legu súkkulaði frá stór­markaðsris­an­um M&S sem er að gera allt vit­laust. Hér hef­ur hið þekkta sæl­gæt­is­svín, Percy Pig, fengið nýtt hlut­verk sem bleikt súkkulaði.

Snilld­in við þetta súkkulaði, er að þú set­ur það ofan í glasið og hell­ir heitri mjólk yfir svo að hún bræðir súkkulaðið sem breyt­ist í fal­leg­an drykk. Og það er ekki allt! Því í hverj­um „haus“ má finna litla syk­ur­púða sem fljóta í heitri súkkulaðimjólk­inni þegar skel­in hef­ur bráðnað. Það væri frá­bært að sjá ein­hvern af okk­ar flinku súkkulaðifram­leiðend­um hér heima út­búa eitt­hvað svipað fyr­ir okk­ur hér heima til að kæta mann­skap­inn eft­ir sleðaferð.   

Mbl.is/​In­sta­gram/@​New­foodsuk
Mbl.is/​In­sta­gram/@​New­foodsuk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert