Vikuseðill Evu Maríu hjá Sætum syndum

Eva María „sætar“, eins og hún er oftast kölluð. Snillingurinn …
Eva María „sætar“, eins og hún er oftast kölluð. Snillingurinn á bak við Sætar syndir - eitt besta sælkerahús landsins er kemur að kökum og kræsingum. Kristinn Magnússon

Það eru fáir betri í að setja sam­an viku­seðil­inn en mat­gæðing­ur­inn og bakst­urssnill­ing­ur­inn Eva María hjá Sæt­um synd­um. Þeir sem til þekkja vita að hún töfr­ar fram lista­verka­kök­ur sem eiga eng­an sinn líka.

„Ég elska að dunda mér í eld­hús­inu og finnst fátt skemmti­legra en að elda og svo borða góðan mat,“ seg­ir Eva María í sam­tali. „Ég fæ svo mikla hug­ar­ró við að elda, það er svo gam­an að búa til eitt­hvað dá­sam­legt úr ein­föld­um hrá­efn­um. Lífið er ein­fald­lega of stutt til að borða vond­an mat – það er mitt móttó,“ seg­ir Eva María og við tök­um heils­hug­ar und­ir.

Það er nóg að gera hjá Sæt­um synd­um þessa dag­ana, þar sem allt er að vakna til lífs­ins eft­ir sum­arið og Covid-dvala, en Eva María flakk­ar mikið á milli úti­búa. „Ég byrja dag­inn milli átta og níu á morgn­ana í Hlíðasmára 19 þar sem öll fram­leiðslan okk­ar er og kem öllu í gang. Síðan er ég oft­ast mætt á kampa­vínskaffi­húsið um há­degið og fer yfir vik­una og allt með starfs­fólk­inu þar. Vinnu­dag­arn­ir eru fjöl­breyti­leg­ir; ég er enn að baka kök­ur, búa til makkarón­ur og skreyta kök­ur en svo fer líka mik­ill tími í alla yf­ir­um­sjón eins og pant­an­ir, bók­hald og fjár­mál. Fund­ir með öðrum fyr­ir­tækj­um varðandi vör­ur og sam­starf, og svo starfs­manna­mál. Þannig að dag­arn­ir eru mjög breyti­leg­ir!

Það stytt­ist í jóla­vertíðina og seg­ir Eva María síðustu mánuði árs­ins anna­sama. „Við erum með sör­ur sem fara í sölu í öll­um Hag­kaups­búðum á land­inu og við fram­leiðum um 25.000 sör­ur fyr­ir hver jól. Hverri söru þarf að hand­dýfa í súkkulaði þannig að það eru ansi mörg hand­tök sem þarf til að klára þær. Eins er mikið af skemmti­leg­um verk­efn­um og sam­starfi fram und­an, get ekki sagt frá því eins og er en maður er alltaf að finna nýj­ar og skemmti­leg­ar hug­mynd­ir og vör­ur,“ seg­ir Eva María að lok­um.

Mánu­dag­ur:

Mér finnst alltaf gott að byrja vik­una á létt­um og góðum fiski og þessi er unaðsleg­ur, hef eldað þenn­an oft og hent­ar bæði sem kósí mánu­dags­mat­ur eða þá að djassa hann aðeins upp á föstu­dög­um með góðu hvít­lauks­brauði og smá freyðivíni.

Þriðju­dag­ur:
Súp­ur eru oft fljót­leg­ar og ein­fald­ar í fram­kvæmd en nota­legt að setj­ast niður núna þegar það er byrjað að kólna úti sam­an við mat­ar­borðið fjöl­skyld­an og gæða sér á heitri súpu og spjalla um dag­inn sinn.

Miðviku­dag­ur:
Kjöt­boll­ur elska all­ir í fjöl­skyld­unni en þess­ar eru al­veg svaka­leg­ar.

Fimmtu­dag­ur:
Ég elska pasta og elda mjög oft alls kyns pasta­rétti. Væri senni­lega ekki góður kandí­dat fyr­ir ketó. Car­bon­ara er svo ein­falt, fljót­legt og ódýrt og ein­mitt líka rétt­ur sem hent­ar fyr­ir börn og full­orðna. Rosa gott að vera með gott hvít­lauks­brauð með þess­um.

Föstu­dag­ur:
Þess­um rétti kynnt­ist ég í gegn­um mág­konu mína en hann var eldaður á Hólma­vík fyr­ir ansi mörg­um árum og hann er það góður að þessi kem­ur alltaf upp í hug­ann þegar maður vill gera vel við sig en lang­ar ekki í kjöt.

Laug­ar­dag­ur:
Risotto er eitt af því skemmti­leg­asta sem ég elda. Þessi rétt­ur tek­ur góðan tíma en út­kom­an er svo sann­ar­lega þess virði. Ég næ mér oft bara í bar­stól og sest við elda­vél­ina með kampa­víns­glas í hendi og dunda mér við að elda þenn­an rétt en maður þarf að standa yfir hon­um og þetta er svona klukku­tíma verk en vel þess virði. Ég passa mig alltaf að gera nóg af risotto því ég nýti af­gangsrisotto í aranc­ini dag­inn eft­ir. Aranc­ini eru djúp­steik­ar risottokúl­ur en maður ein­fald­lega býr til kúl­ur úr köldu risotto, velt­ir upp úr eggi og raspi og djúp­steik­ir og ber fram með La Rustica -ósu (fæst í Krón­unni) sem maður er bú­inn að hita og ríf­ur par­mes­an yfir. Þarna fær maður tvær dýr­ind­is máltíðir úr einni matseld.

Sunnu­dag­ur:
Það er gott að enda vik­una á góðu nauti en góð nauta­lund, fransk­ar, bé­arnaisesósa og gott rauðvín eiga svo sann­ar­lega við þar. Per­sónu­lega er ég mjög hrif­in af trufflu­mar­in­eruðum nauta­lund­um sem fást í Kjöt­komp­aníi. Ef fólk er í tímaþröng er auðvitað hægt að kaupa til­bú­inn bé­arnaise-essence til að spara sér nokk­ur spor.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Mbl.is/​Snorri Sturlu­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert