Þetta er jólaliturinn í ár samkvæmt sérfræðingunum

Ib Laursen lætur ekki sitt eftir liggja fyrir þessi jólin, …
Ib Laursen lætur ekki sitt eftir liggja fyrir þessi jólin, og kynnir nýjan dökkgrænan kertastjaka sem er eins og stór stjarna á borði. Mbl.is/Ib Laursen

Svo virðist sem í ár verði eng­inn snún­ing­ur á tískulit jól­anna – því hér er farið í innsta kjarna ef marka má helstu vörumerk­in sem hafa gefið út nýj­ung­ar fyr­ir jól­in.

Á síðasta ári var rauður alls­ráðandi en núna er það dökk­grænn sem virðist verða lit­ur jól­anna þetta árið. Eins verða ýms­ir græn­ir tón­ar sem spila með ásamt hvítu skrauti úr pappa og fleiri smá­atriði sem munu setja svip á hátíðina. Því er vel við hæfi að hugsa um snæviþakta grenitoppa, greni og mosa – þá ertu nokk­urn veg­inn með stemn­ing­una á hreinu. Hér fyr­ir neðan má sjá fyrstu nýj­ung­ar af jóla­vör­um sem skarta jóla­lit árs­ins.

Mistilteinn í dökkgrænum lit frá Broste Copenhagen.
Mistilteinn í dökk­græn­um lit frá Broste Copen­hagen. Mbl.is/©​Broste Copen­hagen
Dökkgræn aðventukerti með grænu greni. Bætið við hvítum díteilum og …
Dökk­græn aðventu­kerti með grænu greni. Bætið við hvít­um díteil­um og stemn­ing­in er kom­in í hús. Mbl.is/©​Broste Copen­hagen
Grænlituð ber skreyta vel og eru alltaf smart.
Græn­lituð ber skreyta vel og eru alltaf smart. Mbl.is/©​Hou­se Doctor
Dagatalakerti í fallegu kertaglasi frá Ferm Living.
Daga­tala­kerti í fal­legu kerta­glasi frá Ferm Li­ving. Mbl.is/​Ferm Li­ving
Hvítu díteilana má til dæmis sækja í þetta fallega útklippta …
Hvítu díteil­ana má til dæm­is sækja í þetta fal­lega út­klippta jóla­skraut. Mbl.is/​Ferm Li­ving
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert