Svona bakar þú hið fullkomna brauð

Hver elskar ekki nýbakað brauð!
Hver elskar ekki nýbakað brauð! mbl.is/Getty

Ertu að reyna fyr­ir þér í brauðbakstri, eða lang­ar þig til að verða betri við hand­tök­in? Þá eru bestu ráðin hér að finna, því við get­um öll bætt okk­ur í bakstr­in­um – svo eitt er fyr­ir víst.

Núm­er eitt: Grunn­atriðin
Það er alltaf betra að byrja á ein­hverju ein­földu og skerpa svo á kunn­átt­unni áður en þú kast­ar þér út í eitt­hvað krefj­andi eins og súr­deigs­brauð.

Núm­er tvö: Höfuðið á und­an hönd­un­um
Taktu þér smá stund í að segja upp­hátt hvað þú ert að fara gera. Það er ákveðin hug­leiðsla og fær þig til að virða deigið bet­ur fyr­ir þér áður en þú sting­ur hönd­un­um í það. Það er alltaf betra að lesa öll fyr­ir­mæli áður en þú fram­kvæm­ir og lík­legra að þú slepp­ir við að gera mis­tök.

Núm­er þrjú: Ekki hræðast klístrað deig
Ekki vera smeyk/​ur við klístrað deig, um það snýst bakst­ur­inn. Og ekki bæta við hveiti ef upp­skrift­in seg­ir annað, því hver og ein upp­skrift er í raun ákveðin vís­indi – og þá er betra að fylgja ferl­inu.

Núm­er fjög­ur: Treystu inn­sæ­inu
Ef þú ert svang­ur/​svöng, skaltu fá þér að borða. Ef þér er kalt, þá skaltu klæða þig bet­ur. Það er mik­il­vægt að taka til­lit, hvort sem um um­hverfi eða bakst­ur sé að ræða – því segj­um við; of mik­ill hiti og deigið deyr með ger­inu. Passið alltaf hita­stigið á vatn­inu áður en þið blandið ger­inu sam­an við.

Núm­er fimm: Æfing, æf­ing, æf­ing
Vertu reiðubú­inn fyr­ir það að bakst­ur­inn heppn­ist kannski ekki full­kom­lega í fyrstu til­raun­um. En ekki gef­ast upp, því hver mis­tök eru skref í rétta átt að hinu full­komna brauði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert