Hér erum við ekki að vitna í drykk sem er það sterkur að þú brennir í þér bragðlaukana – heldur kveikir hann í þér af unaði við að smakka. Yndisaukandi kakódrykkur með mjúkri froðu.
Kakódrykkurinn sem kveikir í þér
2-3 glös
- 2 msk. kakó (það sama og þú notar í bakstur)
- 2 msk. sykur
- 2 dl rjómi
- mjólk
- ísmolar
Aðferð:
- Hellið kakói og sykri saman í skál og hrærið vel saman.
- Hellið rjómanum saman við og þeytið vel, þar til blandan er orðin ljósbrún og froðukennd. Hér er auðveldast að nota handþeytara.
- Setjið ísmola í glas og hellið mjólkinni yfir. Setjið því næst þeytta kakó-rjómann á toppinn og berið fram með röri.