Hvernig væri að fullkomna helgina með nýbökuðum tebollum sem þessum. Við getum nánast fullyrt að allir á heimilinu munu elska þær – því bollurnar eru æðislegar.
Tebollur sem fullkomna sunnudaginn (25 bollur)
- 125 g smjör
- 2 dl mjólk
- 50 g ger
- 3 egg
- 3 msk. sykur
- Salt á hnífsoddi
- 950 g hveiti
Aðferð:
- Bræðið smjörið og blandið saman við mjólkina. Bætið eggi og sykri saman við og leysið því næst gerið upp í blöndunni.
- Bætið hveiti saman við og hnoðið í sirka átta mínútur. Látið deigið hvíla undir viskastykki í 20 mínútur.
- Skiptið deiginu upp og hnoðið í bollur (sirka 50 g hver bolla). Leggið bollurnar á bökunarpappír á bökunarplötu og látið hefast þar til þær hafa tvöfaldað sig.
- Penslið með eggi og bakið við 180° í átta mínútur. Berið fram með smjöri.
Uppskriftin er fengin frá: Cakenhagen