Snilldar leið til að skera út grasker

Ætlar þú að skera út grasker í ár?
Ætlar þú að skera út grasker í ár? mbl.is/TikTok

Hrekkja­vöku­hátíðin er hald­in ár hvert, og fer hratt vax­andi hér á landi. Við för­um varla í gegn­um mat­vöru­versl­un þessa dag­ana, án þess að ramba fram á nokk­ur grasker. Hér er snilld­ar leið til að skera út grasker á ein­fald­an máta.

Til að auðvelda krökk­un­um (og spara full­orðnum vinn­una), þá er ein­fald­asta málið að nota pip­ar­köku­mót af ýms­um toga. Þú legg­ur mótið að grasker­inu og bank­ar í það með hamri þannig að það skeri í gegn. En fyrst af öllu þarftu að skafa allt gumsið inn­an úr grasker­inu, til að koma síðar kerti þar fyr­ir sem skap­ar end­an­legu stemn­ing­una.

Piparkökumót er allt sem til þarf.
Pip­ar­köku­mót er allt sem til þarf. mbl.is/​TikT­ok
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert