Brad Pitt kynnir nýtt kampavín

Hollywoodleikarinn Brad Pitt sendir frá sér nýtt kampavín.
Hollywoodleikarinn Brad Pitt sendir frá sér nýtt kampavín. Mbl.is/Fleur De Miraval

„Nýj­ir öfg­ar fyr­ir gæðum“, seg­ir Hollywood­leik­ar­inn og sjarmörinn Brad Pitt um nýtt kampa­vín sem hann send­ir frá sér.

Brad Pitt kynnti á dög­un­um nýja átöpp­un á Champagne Fle­ur de Mira­val, en fram­leiðslan er sú fyrsta síðan Ang­el­ina Jolie seldi sinn hlut í vín­gerðabrans­an­um til drykkjar­vör­uris­ans Tenu­te del Mondo í síðasta mánuði. Hið nýja kampa­vín er bleikt og verður fyrst um sinn tappað á 22 þúsund flösk­ur, en flask­an kost­ar um 50 þúsund krón­ur ís­lensk­ar. Við hér á mat­ar­vefn­um viður­kenn­um fús­lega að það væri ofsa­lega gam­an að fá að poppa ein­um tappa úr flösku og fá að smakka.

Mbl.is/​Fle­ur De Mira­val
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert