Draugabollakökur að hætti Kökudísarinnar

Draugabollakökur að hætti Kökudísarinnar.
Draugabollakökur að hætti Kökudísarinnar. Mbl.is/Mynd aðsend

Hrekkja­vak­an er á næsta leiti og hér deil­ir Dögg Guðmunds­dótt­ir, sem sýn­ir frá köku­skreyt­ing­um á In­sta­gram und­ir nafn­inu Köku­dís­in, skemmti­legri hug­mynd að bolla­kök­um sem hægt er að skreyta fyr­ir dag­inn. Það sem til þarf eru bolla­kök­ur, smjörkrem, can­dy melts og köku­skraut.

Dögg mæl­ir með að baka bolla­kök­ur að eig­in vali, en leiðbein­ing­arn­ar hér fyr­ir neðan miðast við um tíu skreytt­ar kök­ur. „Á mat­ar­vefn­um má finna marg­ar upp­skrift­ir að bragðgóðum bolla­kök­um en auðvitað er líka alltaf hægt að nota Betty Crocker-kökumix. Ef ég hef ekki tíma til að baka bolla­kök­ur frá grunni finnst mér gott að nota Devil's Food-kökumixið fyr­ir súkkulaðibolla­kök­ur og Vel­vety Vanilla fyr­ir vanillu­kök­ur. Ég set deigið í bolla­köku­form um hálfa leið upp og baka eft­ir leiðbein­ing­un­um sem gefn­ar eru á pakk­an­um,“ seg­ir Dögg.

Draugabollakökur að hætti Kökudísarinnar

Vista Prenta

Ein­falt vanillu­smjörkrem

  • 350 g smjör, við stofu­hita
  • 350 g flór­syk­ur
  • 1,5 tsk vanillu­drop­ar
  • svart­ur mat­ar­lit­ur og aðrir lit­ir að eig­in vali (mér finnst best að nota gelmat­ar­liti til að lita smjörkrem)

Aðferð:

  1. Þeytið smjörið vel í hræri­vél á mikl­um hraða þar til það verður létt og ljóst. Þetta tek­ur nokkr­ar mín­út­ur og gott er að skafa a.m.k. tvisvar meðfram hliðunum á skál­inni.
  2. Hægið á hræri­vél­inni og bætið flór­sykri og vanillu­drop­um sam­an við. Aukið hraðann aft­ur og þeytið í nokkr­ar mín­út­ur í viðbót þar til smjörið og flór­syk­ur­inn hef­ur bland­ast vel sam­an. Gott er að skafa aft­ur meðfram hliðunum á skál­inni a.m.k. tvisvar.
  3. Litið smá af smjörkrem­inu svart til að nota í augu og munn á draug­un­um og litið af­gang­inn af krem­inu að vild.

Draug­ar úr can­dy melts

  • 100 g hvítt can­dy melts
  • svart smjörkrem

Aðferð:

  1. Bræðið can­dy melts í skál í ör­bylgju­ofni, 30 sek­únd­ur í senn og hrært á milli þar til allt hef­ur bráðnað.
  2. Setjið bök­un­ar­papp­ír á skurðarbretti.
  3. Takið eina te­skeið af can­dy melts og setjið á papp­ír­inn.
  4. Rennið te­skeiðinni snögg­lega í smá sveig til hliðar og dreifið úr til að búa til draug­inn.
  5. End­ur­takið fyr­ir þann fjölda af bolla­kök­um sem þið eruð með. Gott er að gera nokkra auka­drauga ef ein­hverj­ir skyldu brotna þegar þeir eru sett­ir á kök­urn­ar.
  6. Setjið skurðarbrettið með draug­un­um í ís­skáp í nokkr­ar mín­út­ur svo þeir harðni.
  7. Setjið svart smjörkrem í sprautu­poka og klippið lítið gat á pok­ann (hér má líka nota mjög lít­inn hring­laga sprautu­stút).
  8. Takið skurðarbrettið út úr ís­skápn­um og sprautið lít­il augu og munn á draug­ana.

Sam­setn­ing:

  1. Sprautið krem­inu á bolla­kök­urn­ar með sprautu­stút að eig­in vali. Ég notaði stút frá Ateco nr. 869.
  2. Dreifið köku­skrauti yfir smjörkremið.
  3. Setjið einn draug ofan á hverja köku.
  4. Að lok­um má klippa staf­ina B-O-O út úr kart­oni og líma á tann­stöngla til að skreyta eina eða fleiri kök­ur með.
  5. Njótið!
Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert