Kertatrixið sem þú þarft að kunna

Spaghettí getur leyst margan vandan, eins og sjá má hér.
Spaghettí getur leyst margan vandan, eins og sjá má hér. mbl.is/TikTok

Kerta­tíma­bilið er svo sann­ar­lega hafið. Við kveikj­um á kert­um núna öll kvöld og njót­um þess á meðan skamm­degið hell­ist hraðar og hraðar yfir okk­ur. Og þá er gott að kunna þetta snjalla trix hér!

Kerta­stjak­ar og kerti geta verið alls kon­ar – og þá mein­um við í ýms­um stærðum og gerðum. Og þegar við stönd­um frammi fyr­ir að vera með kerti sem ligg­ur ofan í vasa eða stjaka sem er mun hærri en kertið sjálft, þá get­um við lent í klemmu þegar við ætl­um að kveikja á kert­inu því það sit­ur of neðarlega og við brenn­um okk­ur bara á fingr­un­um. En þá kem­ur að þessu hér. Til að kveikja á kerti sem er neðarlega í kerta­glas­inu skaltu draga fram spa­gettí (ósoðið ef ein­hver er í vafa) – og nota það sem eld­spýtu til að kveikja á kert­inu. Al­gjör snilld!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert