Leyndarmál kokksins að fullkomnum hleyptum eggjum

Hver elskar ekki hleypt egg?
Hver elskar ekki hleypt egg? Mbl.is/mashed.com

Hleypt egg eru eitt af því vin­sæl­asta á bröns hlaðborðum, en við mikl­um því allt of mikið fyr­ir okk­ur hvernig best sé að elda þau. Kokk­ur nokk­ur á TikT­ok, @twochef­so­nekni­fe, deildi með fylgj­end­um sín­um hvernig þú master­ar mörg hleypt egg á sama tíma. En best er þó að vita að því fersk­ari sem egg­in eru, því auðveld­ara og betra er að út­búa hleypt egg.

Svona master­ar þú hleypt egg fyr­ir marga í einu:

  • Setið vatn í pott og hitið að suðu. Bætið ¼ bolla af ed­iki við hverja tvo lítra af vatni.
  • Brjótið egg­in ofan í könnu og passið að rauðurn­ar hald­ist heil­ar.
  • Þegar vatnið byrj­ar að sjóða, hrærið þá í vatn­inu til að búa til einskon­ar „hringiðu“. Á meðan vatnið þyrlast í hringi, hellið þá eggj­un­um í vatnið. Hér þarftu ekki að hafa áhygg­ur að eitt og eitt detti niður í einu, því egg­in munu skilja sig að í vatn­inu.
  • Ef þú ætl­ar að borða egg­in strax, skaltu elda þau eins og þú vilt hafa þau. En ef þú ert að gera þau fyr­ir­fram, skaltu sjóða þau í sirka 3 mín­út­ur sem er minna en venju­leg­ur suðutími er – og skelltu þeim svo í ísbað. Þannig get­urðu und­ir­búið egg­in í góðum tíma og hitað svo upp aft­ur í heitu vatni rétt áður en þú berð þau fram.
  • Mundu, að æf­ing­in skap­ar meist­ar­an!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka