Kjúklingarétturinn sem bráðnar í munni

Þessi kjúklingaréttur er svaðalega góður.
Þessi kjúklingaréttur er svaðalega góður. Mbl.is/Anna Marta

Hér er á ferðinni rétt­ur sem þú bráðnar hrein­lega í munni og skyn­fær­in fara á flug! Kjúk­linga­rétt­ur með parma­skinku, pestó, mozzar­ella og döðlum.  En rétt­ur­inn kem­ur úr smiðju Önnu Mörtu sem fram­leiðir sitt eigið pestó og döðlumauk und­ir eig­in nafni.

Kjúklingarétturinn sem bráðnar í munni

Vista Prenta

Kjúk­linga­rétt­ur­inn sem bráðnar í munni

  • 8 kjúk­linga­bring­ur
  • 12 döðlur skorn­ar
  • 1-2 dl rif­inn ost­ur
  • 8 skeiðar pestó ANNA MARTA
  • 8 sneiðar parma­skinka
  • Gróft salt
  • Sítr­ónupip­ar
  • Fersk basilika

Aðferð:

  1. Ofn­inn stillt­ur á 200 gráður.
  2. Kjúk­linga­bring­urn­ar skorn­ar í tvær sneiðar. Á aðra bring­una er sett­ar tvær döðlur skorn­ar niður og ein parma­skinka. Því næst kem­ur 1 msk mozzar­ella og 1 skeið pestó.  Hin helm­ing­ur­inn af bring­unni er sett yfir og prjónn sett­ur í miðja bring­una til að halda henni sam­an.
  3. Bring­un­um er svo raðað í eld­fast mót. Gott að krydda með grófu salt og sitrónupip­ar.
  4. Þegar rétt­ur­inn er til­bú­in er frá­bær að toppa hann með ferskri basiliku.
  5. Borið fram með góðu  sal­ati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert