Svona færðu heimilið til að anga eins og jólin

Það er ekki seinna vænna en að fara kynda upp …
Það er ekki seinna vænna en að fara kynda upp í jólunum, segja einhverjir. Hér er uppskrift að æðislegum jólailmi. Mbl.is/TikTok_carolina.mccauley

Marg­ir lands­menn eru að detta í jólagír­inn, á meðan aðrir sitja á sér þar til í des­em­ber. Hér er ynd­is­leg­ur jólailm­ur sem þú get­ur búið til úr nokkr­um hrá­efn­um heima.

Upp­skrift að jóla­ang­an:

  • Settu vatn í pott.
  • Skerðu sítrusávöxt í sneiðar, t.d. app­el­sínu, og settu í pott­inn.
  • Helltu ein­um bolla af trönu­berj­um út í pott­inn.
  • Settu nokkr­ar kanilstang­ir sam­an við.
  • Og að lok­um, settu nokkr­ar rós­marín­grein­ar út í vatnið.
  • Hitaðu vatnið að suðu og leyfðu því að malla í smá tíma þar til húsið ilm­ar eins og Þor­láks­messu­kvöld. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert