Stórkostleg staðreynd um sellerí

Sellerí getur komið að góðum notum til að þrífa potta …
Sellerí getur komið að góðum notum til að þrífa potta og pönnur. mbl.is/

Við verðum seint uppiskroppa með góð ráð sem öllu virðist bjarga og hér er eitt það allra furðuleg­asta sem við höf­um lesið.

Svo virðist sem sell­e­rí geti haft mik­il áhrif á eld­hús­störf­in okk­ar og hér er mögu­lega best geymda leynd­ar­málið til þessa er kem­ur að þrif­um fyr­ir potta og pönn­ur.

Við erum að tala um að hreinsa skít­uga og brennda potta og pönn­ur með sell­e­rí. Fyrsta skrefið er að skera sell­e­rí í litla bita og setja í pott­inn sem er hauga­skít­ug­ur. Helltu því næst vatni í pott­inn og hitaðu vatnið að suðu. Leyfðu sell­e­rí­inu og vatn­inu að malla í góða stund áður en þú hell­ir því niður og strýk­ur pott­inn að inn­an, tand­ur­hrein­an. 

Skerið sellerí í bita og sjóðið í potti til að …
Skerið sell­e­rí í bita og sjóðið í potti til að losa um óhrein­ind­in. mbl.is/​Tikt­ok
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert