Umbreytti heimilinu með límbandi og spreyi

Litagleði sem sprengir alla aðra skala.
Litagleði sem sprengir alla aðra skala. Mbl.is/Jam Press/@prettypocketprojects

Hér sjá­um við svaka­lega breyt­ingu á einu heim­ili og það ein­göngu með lím­band og sprey­brúsa við hönd. Hér er til að mynda eld­húsið allt öðru­vísi en heima hjá flest­um.

Natasha býr ásamt eig­in­manni sín­um og tveim­ur börn­um í Lancashire á Bretlandi – en þar hef­ur Natasha breytt heim­il­inu í gegn­um árin og út­kom­an er stór­kost­leg litap­ara­dís. Heim­ili henn­ar er eins og strigi sem hún hef­ur málað í stór­um stíl! All­ar vegg­mynd­irn­ar í hús­inu eru hand­málaðar og hannaðar af Natös­hu, og stig­inn er skreytt­ur regn­boga með lím­bandi. Eins hef­ur hún spreyjað baðher­bergið og lífgað upp á vöru­bretti und­ir rúmið í svefn­her­berg­inu. Breyt­ing­arn­ar hafa kostað um 700 þúsund krón­ur en þar af er sófa­kostnaður sem er um helm­ing­ur­inn af upp­hæðinni. Það besta við þetta allt sam­an er að maður­inn henn­ar er lit­blind­ur og sér heim­ilið í allt öðru ljósi en aðrir sem þangað rata.

Mbl.is/​Jam Press/@​prettypocket­proj­ects

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert