Að sofa í alveg dimmu rými eða með smátíru getur skipt sköpum upp á heilsuna. En hvað segja sérfræðingarnir um málið?
Sérfræðingar eru nokkuð samhljóða hvað þetta mál varðar – en það er best að sofa í myrkri. Rannsóknir hafa verið gerðar á bæði dýrum og mönnum og niðurstöðurnar eru ótvíræðar. Of mikið ljós á nóttunni getur valdið þunglyndiseinkennum.
Fimm ástæður fyrir meiri birtu í svefnherberginu í nútímasamfélagi
- Nýjustu straumar og stefnur í svefnrýmum eru ljósir litir – að mála herbergið í dökkum lit er undantekning.
- Léttar gardínur eru áberandi, en áður voru þungar gardínur það sem réð ríkjum.
- Meiri götulýsingu er nú að finna en áður var.
- Stærri gluggar eru á öllum nútímaheimilum og þar á meðal í svefnherbergjunum.
- Mun fleiri ljósgjafa er að finna á heimilum í dag – þá eigum við ekki bara við lampa og ljós, því hér ræðir um snjalltæki, hleðslutæki, tölvur og þess háttar.