Salatið sem Tobba varð ástfangin af á Balí

Salatið smakkast eins og draumur.
Salatið smakkast eins og draumur. Ljósmynd/Aðsend

Meist­ari Tobba Marínós deild­ir hér upp­skrift að sal­ati sem hún kol­féll fyr­ir þegar hún dvaldi á Balí hér um árið. Sal­atið er sjúk­lega hollt og bragðast unaðslega.

„Ég varð ást­fang­in af þessu sal­ati á Balí og í mesta sudd­an­um finnst mér fátt betra en að rifja upp góða takta frá Balí. Byrja dag­inn á of­ur­skál frá Granóla­barn­um sem er án alls viðbætts­syk­urs og fá mér svo súper­sal­at í há­deg­inu. Ég hlýt að enda sem of­ur­hetja!!“ seg­ir Tobba við mæl­um svo sann­ar­lega með grænu djús­un­um henn­ar sem gera allt betra.  

Salatið sem Tobba varð ástfangin af á Balí

Vista Prenta

Súper­sal­at frá Balí!

  • 300 g soðin rauð hrís­grjón – ath passa að ofsjóða ekki. Þau eiga að vera stökk.
  • 1 avóka­dó- ekki of mjúkt!
  • ½ bolli ferskt kórí­and­er
  • ½ bolli fersk mynta
  • ½ bolli Kasjúhnet­ur
  • 1 bolli picollo tóm­at­ar
  • ½ bolli fersk­ar eda­mame baun­ir ef fá­an­leg­ar
  • 1 bolli spergilkál
  • 1 bolli grillaðir sæt­kart­ö­flu­ten­ing­ar (gott að eiga þess­ar elsk­ur inn í ís­skáp – frá­bært snakk fyr­ir litla putta)
  • 1 msk. þurrkuð trönu­ber
  • 2 tsk. kó­kosol­ía
  • ½ lime
  • Sjáv­ar­salt

Aðferð:

  1. Hrís­grjón­in er soðin með 1 msk. af kó­kosolí og 1 tsk. af salti. Sett til hliðar og kæld.
  2. Því næst er spergilkálið létt­steikt upp úr kó­kosol­íu en hún hent­ar mun bet­ur en ólífu­olía til steik­ing­ar á háum hita. Passið að létt­steikja kálið svo það tapi ekki nær­ing­ar­gildi sínu og haldið stökk­leik­an­um.
  3. Tóm­at­arn­ir eru skorn­ir í tvennt og ferska kryddið saxað. Avóka­dóið er skorið í ten­inga. Hnet­urn­ar saxaðar og baun­irn­ar tekn­ar inn­an úr belgn­um. Því næst er öllu blandað var­lega sam­an.
  4. Öllu blandað sam­an. Salt, kó­kosol­ía og li­mes­afi fara sam­an í bolla – og er helt yfir sal­atið áður en það er borið fram. Ég borða sal­atið alltaf eitt og sér í há­deg­inu en það er án efa full­komið með grilluðum lax!
  5. Ekki er verra að fá sér græn­andjús með og senda nokkra fal­lega og já­kvæða pósta. Ekki send­ur maður hatemail eft­ir svona góðan mat! 
Græni drykkurinn sem gerir allt betra.
Græni drykk­ur­inn sem ger­ir allt betra. Ljós­mynd/​Aðsend
Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert