Má bjóða þér hálft kíló af Ferrero Rocher

Gætir þú torgað hálfu kílói af sælgætiskúlu?
Gætir þú torgað hálfu kílói af sælgætiskúlu? mbl.is/Bad Brownie´s

Stökkt en samt svo mjúkt! Við erum að sjálf­sögðu að vitna í Fer­rero Rocher-mol­ana sem við elsk­um að maula og þá sér­stak­lega yfir jóla­hátíðarn­ar. Og nú fá­an­legt í yf­ir­stærð ef ein­hver hef­ur áhuga.

Kringl­ótt­ir mol­arn­ir, pakkaðir inn í gyllt­ar umbúðir eins og hver önn­ur jólakúla, kitla svo sann­ar­lega bragðlauk­ana. En hversu mikið af hinu góða? Þessi risa­stóra kúla myndi gleðja alla fjöl­skyld­una sem desert á jól­un­um, og meira til. Það eru Bad Brownie's sem hafa gert „ná­kvæma“ eft­ir­lík­ingu af kúl­un­um góðu – nema bara í yf­ir­stærð. Þeir sem vilja freist­ast í meiri syk­ur yfir hátíðarn­ar geta pantað kúl­una HÉR.

mbl.is/​Bad Brownie´s
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert