Hætta á að fólk grípi í tómt fyrir jólin

Ljósmynd/Instagram

Des­em­ber er anna­sam­ur mánuður fyr­ir okk­ur öll – sama hversu tíma­leg við ætl­um okk­ur að vera með und­ir­bún­ing­inn, þá er alltaf eitt­hvað sem dett­ur af tein­un­um og gleym­ist. Við rák­umst á góða ábend­ingu hjá sæl­kera­bak­ar­an­um Gulla Arn­ar sem bend­ir góðfús­lega á þessa staðreynd og minn­ir fólk jafn­framt á að panta vör­urn­ar sín­ar tíma­lega.

Það get­ur aukið á jóla­stressið að ætla sér eitt­hvað ákveðið fyr­ir jól­in, og þegar við för­um svo eft­ir því – þá gríp­um við í tómt. Best er að ákveða með góðum fyr­ir­vara ef þú ætl­ar þér að panta ákveðnar vör­ur til að gull­tryggja að þú fáir það sem þú ósk­ar, þá sér­stak­lega það sem snýr að mat og bakk­elsi. Við hér á mat­ar­vefn­um leggj­um til að fólk gefi sér tíma til að setj­ast niður og ákveða hvað það vilji hafa í mat­inn í kring­um hátíðarn­ar og fari rak­leiðis í það að leggja inn pant­an­ir fyr­ir jól­in, ef slík er raun­in. Það mun strax létta á álag­inu seinna í des­em­ber og tím­an­um má verja í annað en að finna „staðgengil“ fyr­ir upp­á­halds kjötið eða sæl­kera­bomb­una sem fjöl­skyld­an elsk­ar. Við vilj­um allra síst raska góðum mat­ar­hefðum á þess­um árs­tíma.

Sælkerakrásir frá Gulla Arnari.
Sæl­kerakrás­ir frá Gulla Arn­ari. Mbl.is/​In­sta­gram_G­ulli Arn­ar
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert