Michael Bublé kynnir nýtt sódavatn

Stórsöngvarinn Michael Bublé, hefur í mörgu að snúast, og kynnir …
Stórsöngvarinn Michael Bublé, hefur í mörgu að snúast, og kynnir nú nýtt sódavatn. mbl.is/RICHARD DOBSON/NEWSPIX

Söngv­ar­inn og sjarmörinn, Michael Bu­blé, hef­ur gefið út nýtt sóda­vatn sem ber nafnið „Merry Berry Bu­blé“. Hér um ræðir hátíðardrykk með hind­berj­um, bróm­berj­um og jarðarberj­um – eða frísk­andi vatn með búbbl­um.

Grammy verðlauna­haf­inn hef­ur ekki bara selt yfir 75 millj­ón­ir plöt­ur á heimsvísu, held­ur fram­leiðir hann nú líka sóda­vatn í sam­starfi við Pepsi. Dós­in er fag­ur­lega skreytt og minn­ir helst á prjónaða jólapeysu með fest­leg­um mynd­um sem gleðja augað. Það væri af­skap­lega gam­an að kom­ast yfir eina svona dós og fá að smakka.

Einstaklega flott og skemmtileg hönnun á dósinni.
Ein­stak­lega flott og skemmti­leg hönn­un á dós­inni. mbl.is/​Bu­blé
mbl.is/​Bu­blé
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert