Vinsælasta tunna heims í nýjum lit

Nýr dökkgrænn litur í vinsælustu tunnu heims - frá Vipp.
Nýr dökkgrænn litur í vinsælustu tunnu heims - frá Vipp. Mbl.is/Vipp

Vin­sæld­ir Vipp-tunn­unn­ar eiga eng­an sinn líka – enda mögu­lega ein fal­leg­asta rusla­tunna sem fyr­ir­finnst og nú í splunku­nýj­um og spenn­andi lit.

Vipp fagnaði opn­un á nýju hús­næði sínu í Man­hatt­an nú á dög­un­um, eða „Vipp Studio NYC“. Og þar má meðal ann­ars finna hina víðfrægu rusla­tunnu sem upp­haf­lega var hönnuð árið 1939 og hef­ur haldið vin­sæld­um sín­um síðan. Tunn­an hef­ur fengið nýj­an lit, dökk­græn­an, sem var frum­sýnd­ur í Vipp Studio – nýopnuðu vinnu­rými og sýn­ing­ar­sal fyr­ir­tæk­is­ins í Man­hatt­an, sem einnig er einka­heim­ili Sofie Eg­e­lund, en hún er barna­band Holgers Niel­sens, stofn­anda Vipp.

Sofie seg­ir í frétta­til­kynn­ingu að hún muni eft­ir dökk­græn­um tunn­um sem afi henn­ar hafði búið til, og því hafi verið ákveðið að gera slík­ar tunn­ur fyr­ir Vipp Studio í New York – ásamt glæsi­leg­um skrif­borðsstól úr leðri í sama lit.

Ef ein­hver á leið um Man­hatt­an og lang­ar að skoða þenn­an fal­lega sýn­ing­ar­sal, þá er heim­il­is­fangið Vipp Studio NYC, 39 Lispen­ard Street, 5th floor, 10013 New York – en bóka þarf tíma til að fá að koma og skoða.

Skrifborðsstóllinn úr leðri er einnig í sama lit og tunnan.
Skrif­borðsstóll­inn úr leðri er einnig í sama lit og tunn­an. Mbl.is/​Vipp
Mbl.is/​Vipp
Mbl.is/​Vipp
Mbl.is/​Vipp
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert