Heimagerður jólailmur í flösku

Uppskrift að góðum jólailmi - gjörið svo vel.
Uppskrift að góðum jólailmi - gjörið svo vel. mbl.is/

Hér er upp­skrift að ein­faldri blöndu sem fær­ir jól­in inn á heim­ilið - eða svona hér um bil. Þetta er bland­an sem þú vilt nota óspart í des­em­ber og leng­ur ef því er að skipta. Hér um ræðir heima­gerðan jólailm sem þú bland­ar í flösku. Ilm­ur­inn er það góður að hann gæti komið í staðinn fyr­ir þrif, ef ein­hver myndi ganga svo langt.

Heima­gerður jólailm­ur

  • ¾ vatn í sprey­flösku
  • ¼ norna­hesli­vatn (fæst í Jurta­apó­tek­inu)
  • Nokkr­ir drop­ar af ilmol­íu­kjörn­um eins og pip­ar­mynta, app­el­sína, kanil og þess hátt­ar.
  • Hrisstið létt sam­an og spreyið að vild um heim­ilið. Eins á gervi­grein­ar og annað skraut.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert