Bókin sem beðið hefur verið eftir

Á dög­un­um kom út bók­in Heima­bar­inn eft­ir þá Ivan Svan Cor­vasce og Andra Davíð Pét­urs­son. Bók­in inni­held­ur mik­inn fjölda upp­skrifta að bæði áfeng­um og óá­feng­um kokteil­um, auk ít­ar­legr­ar kennslu, fróðleiks um aðferðir og vín­teg­und­ir. Má því segja að bók­in inni­haldi flest það sem þarf til að geta blandað góðan drykk.

Það eru barþjón­arn­ir Ivan Svan­ur og Andri Davíð sem eru höf­und­ar bók­ar­inn­ar er báðir eru þeir þunga­vigt­ar­menn í fag­inu og hafa getið sér gott orð hér heima sem er­lend­is. Að sögn þeirra fé­laga ákváðu þeir að leiða hesta sína sam­an eft­ir að í ljós kom að þeir höfðu báðir fengið ná­kvæm­lega sömu hug­mynd að því að gera kokteila­bók. Í fram­hald­inu fór af stað yf­ir­grips­mik­il vinna þar sem ákveðið var hvernig að verk­inu yrði staðið.

Útkom­an er ein­stak­lega vel heppnuð bók sem inni­held­ur mik­inn fróðleik, fullt af ómiss­andi upp­skrift­un svo ekki sé minnst á forkunn­ar­fagr­ar mynd­ir eft­ir Krist­inn Magnús­son.

Ivan Svanur og Andri Davíð.
Ivan Svan­ur og Andri Davíð.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert