Undurfögur Eva hittir í mark

Eva Laufey
Eva Laufey

Aðdá­end­ur Evu Lauf­eyj­ar geta sann­ar­lega tekið gleði sína því nýj­asta bók hinn­ar ís­lensku eld­hús­gyðju, Bakað með Evu, veld­ur sann­ar­lega ekki von­brigðum.

Bók­in er und­ur­fög­ur en það er Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dótt­ir sem tek­ur mynd­irn­ar og Þor­björg Helga Ólafs­dótt­ir hjá Far­vi.is sá um hönn­un.

Bók­inn inni­held­ur mik­inn fjölda æðis­legra upp­skrifta og eig­in­lega mæl­um við með að þið dundið ykk­ur við að fletta í gegn­um bók­ina. Einnig mæl­um við með litl­um merkimiðum svo þið getið ákveðið strax hvað ykk­ur langa að prófa.

Kök­ur, brauðrétt­ir, brauð og al­menn­ur bakst­ur prýða bók­ina sem er skyldu­eign fyr­ir alla þá sem elska að baka (eða bara horfa á mynd­ir af girni­leg­um kök­um).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert