Íslensku húðvörurnar sem hitta í mark

Verandi framleiðir húð- og hárvörur sem skila sér margafallt til …
Verandi framleiðir húð- og hárvörur sem skila sér margafallt til baka - þá til umhverfissins og vellíðunar. Mbl.is/Mynd aðsend

Hvað er betra en að gefa gjöf sem skil­ar sér marg­falt til baka – til um­hverf­is­ins og í vellíðan? Íslenska fyr­ir­tækið Ver­andi er með úr­val af spa-vör­um sem við mæl­um heils­hug­ar með í jólapakk­ann í ár  allt unnið úr hágæðahrá­efn­um úr ís­lensk­um mat­vælaiðnaði og land­búnaði sem ann­ars færi til spill­is.

Við elsk­um góðar húð- og hár­vör­ur og við styðjum alltaf þegar fyr­ir­tæki ganga skref­inu lengra í að sporna við of­fram­leiðslu og sóun og auka nýt­ingu á afurðum sem fyr­ir eru. Ver­andi end­ur­vinn­ur og end­ur­nýt­ir, og úr fram­leiðslu þeirra má meðal ann­ars finna ilm­andi góðar sáp­ur, sjampó, baðsölt og margt fleira. Hver myndi ekki vilja handsápu sem þurrk­ar ekki húðina en skil­ur hend­urn­ar eft­ir mjúk­ar og nærðar – fram­leidd úr end­urunni byggi, mýkj­andi ol­í­um og hrein­um ilm­kjarna­ol­í­um sem eru raka­gef­andi og gera húðina silkimjúka. Eng­in skaðleg efni finn­ast í vör­un­um frá Ver­andi og þær henta öll­um.

Þess ber einnig að geta að Ver­andi býður upp á sápu unna úr kakó­hýði frá Omnom-súkkulaði sem lykt­ar dá­sam­lega. Það ef­ast eng­inn um að þetta sam­starf sé neitt annað en það sem sæl­keranagg­ar mat­ar­vefs­ins þurfa að eign­ast þessi jól­in. Það er fátt betra en að fá góða snyrti­vöru í jólapakk­ann, sem nær­ir húðina og gleður. Vör­urn­ar frá Ver­andi má finna til að mynda hjá Von­ar­stræti, Heilsu­hús­inu, Hag­kaup og á heimasíðu Ver­andi HÉR.

Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert