Partý-osturinn sem Læknirinn er að missa sig yfir

Við höf­um form­lega fundið full­komn­um í ostlíki en það er þessi dá­sam­legi ost­ur sem hægt er að henda beint inn í ofn í umbúðunum og út kem­ur ein­hver sú mesta snilld sem sést hef­ur.

Það eina sem þarf að gera er að skera kross í ost­inn, sulla smá hvít­víni yfir (eða ekki) og hita í ofni á 200 gráðum í 20 mín­út­ur.

Flókn­ara er það ekki eins og sjá má.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert