Safapressan sem fagurkerar landsins elska

Vinsælasta safapressa landsins er þessi hér.
Vinsælasta safapressa landsins er þessi hér. Mbl.is/Hurom

Hún er ekki bara smart, því hún er líka ein sú besta í fag­inu. Við erum að sjálf­sögðu að tala um safa­press­una sem fag­ur­ker­ar lands­ins halda ekki vatni yfir.

Hér um ræðir mestu snilld­ar græju síðari ára, eða H-200 safa­press­una frá Hurom. Græja sem krefst lít­ils sem einskis frá þér, því hún ger­ir nán­ast allt fyr­ir þig. Þú þarft hvorki að skera niður hrá­efnið né ýta því í gegn­um vél­ina. Þú ein­fald­lega fyll­ir könn­una af góm­sætu græn­meti og/​eða ávöxt­um og set­ur í gang. Í botni könn­unn­ar er blað sem brytj­ar niður og leiðir hrá­efnið niður að snigl­in­um. Snig­ill­inn sem press­ar hrá­efnið snýst ein­göngu 50 snún­inga á mín­útu, en kost­ur­inn við hæga press­un er sú að nær­ing­ar­efn­in hald­ast í saf­an­um og úr verður minna hrat. Og vegna ný­stár­legr­ar hönn­un­ar á sí­unni, þá auðveld­ar það þrif­in til muna. Vin­sæl­asta safa­pressa lands­ins er fá­an­leg í mörg­um lit­um og fæst í versl­un­inni Kokku.

Mbl.is/​Hurom
Mbl.is/​Hurom
Mbl.is/​Hurom
Mbl.is/​Hurom
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert