Svona er best að þrífa Air Fryer

Marg­ur land­inn hef­ur orðið sér úti um eitt vin­sæl­asta heim­ilis­tækið þessi dægrin. Við erum að sjálf­sögðu að tala um Air Fryer eða loftsteik­ing­ar­tæki. En hér er besta leiðin til að þrífa græj­una.

Svona þríf­ur þú Air Fryer

  • Stráðu vel af mat­ar­sóda yfir botn­inn á körf­unni.
  • Sprautaðu uppþvotta­legi yfir mat­ar­sódann og helltu sjóðandi heitu vatni yfir, nán­ast al­veg upp að brún. Leyfðu þessu aðeins að standa og taka sig.
  • Skrúbbaðu því næst og skolaðu körf­una og þurrkaðu vel á eft­ir. 
  • Þrífðu utan af græj­unni með ed­ik­blöndu – helm­ingi af ed­iki og helm­ingi af vatni.
Air Fryer hefur eflaust leynst undir trénu hjá nokkuð mörgum …
Air Fryer hef­ur ef­laust leynst und­ir trénu hjá nokkuð mörg­um þessi jól­in. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert